Heim Matseðill Specials Partýpinnar Veislur/hópar Gjafabréf Viðskiptareikningur
Um Friday's Starfsfólk/umsókn Hafa samband Veftré

Alltaf föstudagur - alltaf fjör
Í Vetrargarðinum í Smáralindinni, má finna stað þar sem er alltaf föstudagur og alltaf fjör, T.G.I. Friday's.

Starfsfólki Friday's er umhugað um að andrúmsloftið sé alltaf ferskt, skemmtilegt og afslappað, og markmiðið er að bjóða fyrsta flokks mat og góða þjónustu.

T.G.I. Friday's var opnað árið 2001 og er stærsti matsölustaður sinnar tegundar á landinu þar sem hugsað er fyrir öllu til að gestum líði sem best og njóti góðs matar og skemmtilegs andrúmslofts.
Guði sé lof fyrir föstudaga
T.G.I Friday´s var fyrst veitingahúsakeðja í Bandaríkjunum til að bjóða upp á þægilega og óformlega stemningu (casual dining).

Hugmyndafræði T.G.I Friday´s féll vel í kramið frá upphafi og hefur hann áunnið sér fastan sess í tilverunni hjá milljónum gesta frá árinu 1965 þegar fyrsti staðurinn var opnaður í New York. Það var ungur og ógiftur ilmvatnssali sem sá að besta útspilið til að komast í kynni við flugfreyjur í New York var að kaupa niðurníddan bar og flikka upp á hann með ýmsum athyglisverðum hlutum. Hann réði unga og hressa þjóna og nefndi staðinn því skemmtilega nafni Thank God It´s Friday (Guði sé lof fyrir föstudaga) sem gestirnir styttu fljótlega í Friday´s.

Staðurinn varð strax mjög vinsæll og það spurðist fljótt út að bryddað væri upp á óvenjulegum uppákomum í tíma og ótíma eins og að bjóða föstudaginn velkominn með miklum látum. T.G.I. Friday´s staðirnir eru nú 739 í 54 löndum.



Staður fyrir alla
Í upphafi voru T.G.I. Friday´s staðirnir samkomustaðir ógiftra og blöðin gengu jafnvel svo langt að segja opnun staðanna marka upphaf nýrra tíma "hinna ógiftu". Friday´s hefur síðan breyst með gestum sínum og aðlagað sig að þörfum þeirra. Samstaðan hefur vaxið og gestirnir þroskast. Vinir hittast á Friday´s og fjölskyldan fer þangað saman enda finna allir eitthvað við sitt hæfi á fjölbreyttum matseðli.

Alltaf von á góðu
Andrúmsloftið er alltaf ferskt, skemmtilegt og afslappað hjá T.G.I. Friday´s. Markmiðið er að bjóða fyrsta flokks mat og góða þjónustu undir einkunnarorðunum "óskum gestanna er aldrei neitað". Starfsfólkið er fjörugt og uppátækjasamt þannig að gestir geta alltaf átt von á einhverju skemmtilegu. Það er hugsað fyrir öllu til þess að gestunum líði sem best;
innréttingum, tónlist, lýsingu og viðmóti.
GEM - Guest Experience Monitor

Friday's GEM
(Guest Experience Monitor) er það sem við kjósum að kalla Ánægjukönnun Friday's

Ákveðinn fjöldi viðskiptavina okkar er valinn af handahófi til að taka þátt í könnun um gæði þjónustu okkar og framreiðslu. Þeir fá gefið upp aðgangsorð á kassakvittun sína sem gefur þeim aðgang að sérstöku vefsvæði þar sem könnunin er gerð.
Þeir heppnu fá svo fyrir viðvikið sérstakan glaðning frá Friday's sem þeir geta notið í næstu heimsókn á staðinn!

fara á vef ánægjukönnunar Friday's
Skemmtilegir molar
Árið 2000 heimsóttu 164,326,250 gestir 646 Friday´s veitingastaði í 52 löndum.

Þeir borðuðu
19.800.000 hamborgara eða 3.695 tonn
6.462.584 skálar af spergilkálssúpu
6.602.120 skammta af Buffalo kjúklingavængjum
31.530 tonn af frönskum kartöflum
3.917 tonn af kjúklingavængjum
3.916 tonn af tómatsósu
Þeir drukku
51.873.800 gosglös
9.431.600 kaffibolla
Samanlagt
Næði fyllta kartöfluhýðið tvisvar hringinn í kringum Ísland
Næðu kjúklingavængirnir frá Reykjavík til Washington D.C.
Samsvara Oreo Madness eftirréttirnir eitt þúsund Hallgrímskirkjuturnum.

Fyrst hjá T.G.I. Friday´s
Friday´s leggur áherslu á nýsköpun og hefur kynnt ýmsa hluti sem nú eru staðlar í veitingahúsageiranum eins og fyllt kartöfluhýði, vinsælasta lystaukann frá 1974 og Jack Daniel´s Grill, vinsælasta milliréttinn á matseðlinum.
Friday´s gerði líka frosna drykki, ísdrykki og óáfeng hanastél vinsæl og bauð fyrstur upp á mexíkóska forrétti, grófmalað heilhveitibrauð, lárperur og baunaspírur.

TGI Friday's
Smáralind
sími: 570 4400

• Skipurit félagsins


MERKI TGI Friday's

• Sækja merki


 
Hafa sambandUm okkurSite Map(c) 2005 TGI Fridays®